Guðmundur Halldórsson
30.07.2006 08:38:29 / gummi1001

FARINN!

Ég er kominn með nýja heimasíðu. Kíkið í heimsókn!

www.gummihalldors.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:31:19 / gummi1001

GAMLAR BLOGGFÆRSLUR

Loksins er hægt að skoða gamlar bloggfærslur í þessu blog.central.is kerfi. Hingað til hefur ekki verið hægt að skoða nema 10-15 færslur aftur í tímann en núna er allt komið inn sem ég hef skrifað hingað til.

Flest af því er auðvitað afskaplega ómerkilegt en þó hafa sumir verið að spyrjast fyrir um færslurnar sem ég skrifaði um Hilmi Snæ fyrstu vikurnar eftir fæðingu hans. Núna er hægt að skoða þær ásamt öðru efni fyrir neðan tenglana vinstra megin á síðunni.

Eitthvað er komið af nýjum myndum af þeim systkinum inn á heimasíðurnar þeirra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 16:49:53 / gummi1001

Á HEIMASLÓÐUM OG STEGGJUN

Síðasta sunnudag flugum við feðginin vestur í Djúp. Við vorum í góðu yfirlæti foreldra minna í 4 daga. Að auki voru Hafliði og Leifur, bræður mínir, með sínar fjölskyldur á svæðinu. Það voru því allt í allt 14 manns á heimilinu þessa daga sem er mjög eðlilegur fjöldi yfir sumartímann.

Guðrún Erla naut sín vel í sveitinni og í fylgd með frændsystkinum sínum lærði hún alls kyns óþekkt. Hún fór yfirleitt ekki að sofa fyrr en um klukkan 11 á kvöldin einu sinni þurfti ég að leiða hana í gegnum húsið og sannfæra hana um að það væru allir farnir að sofa. Hún var á útopnu allan tímann og sveitaloftið fór greinilega vel í hana.

Hún átti 2 ára afmæli þann 18. júlí og hélt upp á daginn með bátsferð. Ennfremur var hún hlaðin gjöfum. Við eigum eftir að halda upp á afmælið hennar hér heima einhvern tíma við tækifæri.

Því miður var Hilmir Snær veikur allan tímann sem við vorum fyrir vestan og þurfti að vera inni á spítala í nærri því fimm sólarhringa. Þess vegna styttum við ferðina okkar um einn sólarhring og komum aftur heim á fimmtudagskvöld Lísu til mikillar undrunar og gleði.

Á laugardag var Eyjó steggjaður, það gerði 16 manna hópur og það var mikið fjör. Meðal annars þurfti hann að þrífa bílrúður á rauðu ljósi á bleyju einni klæða, syngja 7 lög í karokí á Ölveri sem hann gerði reyndar með stæl. Við fórum austur á Laugarvatn um miðjan dag og gerðum ýmislegt skemmtilegt þar; settum stegginn á vatnið, fórum í bandý, gufu og fleira. Virkilega góður dagur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 14:50:38 / gummi1001

VIÐBURÐARÍKIR DAGAR

Sumarfríið hefur verið afskaplega gott. Ég hef verið í fríi síðustu 10 daga og verð í nokkra daga í viðbót. Þá fer nú frídögunum ört fækkandi en reyndar ætla ég að taka vikufríi um miðjan ágúst og við hjónin ætlum í sumarbústað fyrir austan fjall.

Síðustu 10 dagar hafa verið viðburðaríkir. Ég ætla að fjalla lítilsháttar um þá í nokkrum færslum en byrja á golfmótinu sem við fórum á í Vík í Mýrdal.

Nokkir góðvinir mínir tóku sig saman og héldu golfmót til styrktar Hilmi Snæ þann 15. júlí síðastliðinn. Við vorum afskaplega hissa þegar við fréttum af þessu móti, pínulítið kjánaleg en mestmegnis glöð. Ekki yfir því að það væri verið að safna peningum fyrir Hilmi heldur helst að menn gæfu sér tíma í svona lagað í sumarfrístíma sínum.

Mótið fór vel fram og það safnaðist fín upphæð. Við vitum ekki enn hvað við ætlum að gera við þessa peninga en við byrjum á því að geyma þá vel. Vonandi komum við aldrei til með að þurfa að nota þá en við verðum bara að bíða og sjá.

Það voru margir sem komu að þessu móti og vil ég nota tækfærið og þakka enn og aftur fyrir þennan hlýhug.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 21:30:48 / gummi1001

SKANDALL Á ÍTALÍU

Aðeins fimm dögum eftir sigur Ítala á HM þurfa margir leikmenn liðsins að finna sér nýja vinnuveitendur. Ítölsku félögin Juventus, Lazio og Fiorentina hafa verið dæmd til að leika í annarri deildinni þar í landi vegna mútumáls sem kom upp í tengslum við úrslit leikja þar í landi. AC Milan, sem einnig kom við sögu í þessu, verður hins vegar áfram í efstu deild en hefur keppni í haust með 15 stig í mínus og fær ekki að taka þátt í Meistaradeild Evrópu.

Þetta er svakalegur dómur fyrir Juventus. Liðið var svipt ítalska meistaratitli síðustu tveggja ára og byrjar í B deild með 30 stig í mínus, sem er ekkert smáræði. Ekki möguleiki að vinna sig upp í Serie A fyrr en tímabilið 2007-2008 og ekki möguleiki að spila í Meistaradeild fyrr en fyrsta lagi tímabilið 2008-2009. Það eru flestar stjörnunar á förum frá liðinu. Ungmennafélags andinn er löngu dauður og enginn svo fórnfús að standa í svona vitleysu!

Það er forvitnilegt að skoða hvaða lið taka sæti í Meistaradeildinni en það eru þá Inter, Roma, Chievo og Palermo. Ennfremur verður forvitnilegt að fylgjast með toppbaráttunni í Serie A. Ætli Inter eigi loksins séns?


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 14:52:45 / gummi1001

LÉLEG FRÉTTAMENNSKA

Ég horfði á kvöldfréttir NFS í gær og varð vitni að afar bjánalegri og lélegri fréttamennsku. Í fréttayfirliti var sagt frá því að vegna frestunar á vegaframkvæmdum á Vestfjörðum þá vilji íbúar fjórðungsins láta fresta þingkosningum næsta vor.

Mér fannst þetta skrítin yfirlýsing af hálfu Vestfirðinga því þrátt fyrir óánægju með frestun vegaframkvæmda, sem er vissulega ákaflega einkennilegt mál, þá verður slík tillaga að teljast langsótt. En kannski höfðu einstakir bæjarstjórar verið með yfirlýsingar eða jafnvel Fjórðungssamband Vestfjarða sent frá sér ályktun, ég vissi það bara ekki. En nei. Fyrir hönd allra Vestfirðinga talaði einhver maður í fiskverkun á Patreksfirði. Yfirlýsing Vestfirðinga var frá honum komin og honum einum.

Auðvitað var þessi maður ekki að lýsa yfir vilja allra Vestfirðinga heldur sinni persónulegu skoðun á málinu. En það stoppaði ekki hinn annars ágæta fréttamann Kristján Má Unnarsson í því að slá þessari frétt upp með fyrrnefndri fyrirsögn. En skoðun einnar manneskju er ekki yfirlýsing sem hægt er að yfirfæra á fjöldann nema að sú manneskja hafi fengið til þess lýðræðislegt umboð. Ég veit ekki til þess að maðurinn á Patreksfirði sé rétt kjörinn fulltrúi Vestfirðinga á sviði samgöngumála.

Rétt fyrirsögn hefði verið: “Vestfirðingar æfir vegna frestunar vegaframvæmda og einn maður á Patró vill láta fresta þingkosningum”. Satt, en hljómar bara ekki eins vel.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 10:31:06 / gummi1001

GOLF

Ég fór í golf í gærkvöldi í fyrsta skipti á þessu ári. Ég hef verið upptekinn við vinnu og bleyjuskipti þannig að golfið hefur þurft að sitja á hakanum þetta árið. Ég fór upp í Bása fyrst til að slá nokkra æfingarbolta. Það er óhætt að segja að það hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel, ég hitti ekki fyrsta boltann fyrr en í fjórðu tilraun.

Ég tók 9 holur með Eyjó á litla vellinum á Korpunni. Í sjálfu sér gekk þetta samt ágætlega, svona miðað við fyrsta hring sumarsins og var alveg þrælgaman. Eyjó vann mig með nokkrum höggum og fór að monta sig við mig. Að hætti góðra íþróttamanna þá skallaði ég hann bara í bringuna!

Talandi um að skalla menn í bringuna þá hefur Zidane beðist afsökunar á framferði sínu en vildi ekki segja nákvæmlega hvað Materazzi sagði við hann í úrslitaleiknum um síðustu helgi. Í afsökunum felst alltaf að gera sömu mistökin aftur og því þykir mér þetta skynsamlegt hjá honum. Mun skynsamlegra en að fara í eitthvað yfirlýsingastríð við Ítalann sem myndi einfaldlega verða honum til enn meiri minnkunar.


Á laugardag förum við fjölskyldan austur í Vík í Mýrdal til að fylgjast með golfmóti sem er svolítið sérstakt. Ég skrifa meira um það síðar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 17:33:49 / gummi1001

HM ENDAR Í TÓMU RUGLI

Jæja, HM í Þýskalandi er lokið og það sem stendur upp úr er að Ítalía vann og Zinedine Zidane endaði ferilinn með skömm með því að stanga varnarmann Ítala.  

Sjá hér: http://www.youtube.com/watch?v=SBaBrcBLbqw&search=materazzi

Hvað svo sem varnarmaðurinn sagði þá bregðast atvinnumenn ekki svona við og Zidane á auðvitað bara að skammast sín. Eftir brottrekstur Zidane var mér eiginlega alveg sama um úrslit leiksins og gott ef ég geispaði ekki yfir vítaspyrnukeppninni.

Hundleiðinlegur endir á sæmilegu móti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 14:54:54 / gummi1001

EITT OG ANNAÐ

Hilmir Snær er kominn heim af spítalanum. Hann stoppaði reyndar ekki eins lengi þar og við héldum í fyrstu. Hann er allur að koma til.

Í dag er úrslitleikurinn á HM. Ég styð Frakka en vonast þó aðallega eftir góðum leik. Ítalir eru með afskaplega sterkt lið og eru sigurstranglegri. Frakkar hafa það þó fram yfir Ítalina að hafa gert þetta allt saman áður enda ekki mörg ár síðan margir af þeirra leikmönnum hömpuðu bæði Heims- og Evrópumeistaratitli.

Ég ætla að fara í smá frí um miðja vikuna. Við ætlum að skjótast austur í Vík næsta laugardag og síðan vestur í Djúp á sunnudeginum. Reyndar förum við bara tvö vestur, ég og Guðrún Erla.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 09:35:59 / gummi1001

HILMIR SNÆR

Hilmir Snær er kominn inn á spítala. Það þurfti að leggja hann inn í gærkvöldi því hann er kominn með lungnabólgu. Nú er hann á Barnaspítalanum með næringu og sýklalyf. Hann mun væntanlega vera þar í einhverja daga. Við foreldrar hans munum reyna að skiptast á að vera hjá honum.


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 22:16:30 / gummi1001

ALLEZ ZIDANE

Frakkar halda áfram að gera góða hluti á HM. Í kvöld slógu þeir heimsmeistara Brasilíu út úr keppninni með sanngjörnum 1-0 sigri. Gamli kallinn Zinedine Zidane sýndi gamalkunna takta og var langbesti maður vallarins. Brasilíumenn aftur á móti hálf andlausir og þungir. Svona líkt og allt liðið væri rúmlega 90 kg en það er víst bara framherjinn Ronaldo sem er í þeim þyngdarflokki.

Ég fékk símtal frá Frakklandi skömmu eftir leik. Harpa systir er í París og var stödd á breiðgötunni Champs-Elysées skammt frá Sigurboganum. Og já, það var bara nokkuð góð stemmning þar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 22:01:14 / gummi1001

ALLEZ LES BLEUS

Það fór eins og mig grunaði. Spánverjar skitu á sig í 16 liða úrslitum HM og töpuðu fyrir Frökkum 3-1. Það voru blendnar tilfinningar hjá mér fyrir þennan leik. Spánverjar með ungt og afskaplega skemmtilegt lið og þrír Liverpool leikmenn í liðinu. En Frakkar hafa lengi verið eitt af mínum uppáhalds landsliðum . Ég var síðan í Frakklandi þegar þeir unnu EM 2000 og var það í einu orði sagt æðislegt að upplifa stemmninguna þá.

Frakkar tóku þetta á reynslunni og seiglunni og það verður að segjast eins og er að þeir áttu þetta eiginlega bara skilið. Ég var ánægður að sjá Zidane klára þetta í uppbótartíma. Ég býst við því að Brassarnir taki Frakkana í fjórðungsúrslitum en hvað veit maður svo sem.

HM fer nú að ná hámarki. Aðeins eru átta lið eftir í keppninni og bara eitt lið, Úkraína, sem enginn nennir að sjá spila. Hin eru allt saman stórveldi og engin leið um að spá hvernig þetta fer nú allt saman.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 23:12:24 / gummi1001

KETTIR SEM LÍTA ÚT EINS OG HITLER

Frábær vefsíða sem ég rakst á. Þetta er bloggsíða sem er tileinkuð köttum sem líta út eins og Hitler.

Sjón er sögu ríkari: http://hitlercats.motime.com/


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 21:40:55 / gummi1001

HM ER GÓÐ SKEMMTUN

HM í Þýskalandi er svo sannarlega góð skemmtun. Annarri umferð riðlakeppninnar var að ljúka í kvöld og hafa margir leikir verið mjög skemmtilegir. Það sem af er hafa Spánverjar og Argentínumenn verið skemmtilegustu liðin á meðan Englendingar, Frakkar og Brasilíumenn hafa verið daprir. Það þarf samt ekki að hafa neitt forspárgildi hvað framhaldið varðar. Það verður gaman að fylgjast með áframhaldinu.

Ég las á minni eigin heimasíðu, mér til mikillar furðu, að ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti uppþvottavélarinnar nýju. Mér þykir það miður. Ég get þó sagt að ég er ekki með öllu laus við uppvaskið því ég þarf, þrátt fyrir allt, að raða í og úr vélinni. En bleika uppþvottahanska hef ég aldrei notað.
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 13:27:19 / gummi1001

HEJA ÍSLAND

Svíagrílan er dáin. Alfreð Gíslason og "strákarnir okkar" drápu hana um síðustu helgi í Globen í Svíþjóð. Jarðarförin fór síðan fram í gær í Laugardalshöllinni. Það verður gaman að fylgjast með HM í handbolta í Þýskalandi næstkomandi janúar.

Ég fann skemmtilega vefsíðu í morgun. Þetta er slúðursíða um íslensk stjórnmál og viðskiptalíf, svona svipað og frettir.com var á sínum tíma.
Slóðin: http://www.ordid.blog.is 

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13